Um okkur
Stirnir er lítið fjölskyldufyrirtæki sem varð til í kringum sameiginlegan áhuga á alhliða heilsu og náttúrulegum bætiefnum. Eftir að hafa prófað alls konar fæðubótaefni í gegnum tíðina kynntumst við þessum vörum og fundum gríðarlegan mun á eigin líðan og orku. Eftir mikla rannsóknarvinnu ákváðum við að hefja samstarf við birgja sem við treystum og skapa okkar eigið vörumerki með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á heilsu annarra.
Við leggjum áherslu á að bjóða náttúrulegar heilsuvörur í hæsta gæðaflokki, framleiddar með sjálfbærni og hreinleika í fyrirrúmi. Vörurnar okkar eru framleiddar í Indlandi þar sem birginn okkar vinnur með ástríðufullum bændum sem rækta jurtir á umhverfisvænan hátt, stuðla að sjálfbærri þróun og styðja við sanngjörn viðskiptasambönd.
Vörurnar eru unnar úr vandlega völdum hráefnum frá bændum sem fylgja lífrænum ræktunaraðferðum, án tilbúinna aukaefna, varnarefna eða erfðabreyttra efna. Með áherslu á gæði og sjálfbærni tryggjum við að allar vörur frá birgjanum okkar séu unnar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og vottaðar af viðurkenndum stofnunum, þar á meðal USDA Organic, EU Organic og FSSC 22000.
Markmið okkar er að færa þér hágæða náttúruvörur sem styðja við heilbrigðan lífsstíl og almenna vellíðan. Við viljum vera betri í dag en í gær!