Stirnir
Moringa Powder
Moringa Powder
Couldn't load pickup availability
Moringa Powder
Kraftaverkatréð?
Moringa duftið okkar er 100% hreint og unnið úr laufum Moringa Oleifera. Þetta indverska tré er talið vera ein næringarríkasta planta jarðar og því gjarnan þekkt sem kraftaverkatréð. Um er að ræða öfluga jurt sem hefur verið notuð í þúsundir ára í indverskum náttúrulækningum. Laufin eru þurrkuð varlega og mulin niður í fíngert duft til að varðveita næringargildi plöntunnar. Duftið okkar hentar vel sem viðbót við daglegt mataræði og náttúruleg leið til þess að auka orku, bæta meltingu, efla ónæmiskerfið og styðja við almenna vellíðan.
Af hverju að velja Moringa?
Talið vera rík uppspretta næringarefna:
- Talið innihalda ríkulegt magn af A-, C- og E-vítamíni
- Talið innihalda B-vítamín: B1, B2, B3, B6 og B9
- Talið innihalda steinefni: kalk, járn, magnesíum og kalíum
- Talið innihalda allar 9 lífsnauðsynlegu amínósýrurnar
- Talið innihalda náttúrulegt plöntuprótein
Talið virka sem náttúrulegur orkugjafi:
- Talið geta stutt við náttúrulega orkuframleiðslu líkamans
- Talið innihalda næringarefni sem taka þátt í efnaskiptum og frumustarfsemi
- Talið veita jafna orku yfir daginn
Talið stuðla að heilbrigðri meltingu:
- Talið innihalda hátt trefjainnihald sem getur styrkt meltinguna (bæði leysanlegar og óleysanlegar trefjar)
- Talið innihalda auðmeltanleg plöntuprótein sem styðja við heilbrigða þarmaflóru
- Talið innihalda náttúruleg stuðningsefni fyrir góðar bakteríur í þörmum
- Talið geta hjálpað við að viðhalda jafnvægi á blóðsykri
Talið styðja við ónæmiskerfið:
- Talið innihalda ríkt magn af nauðsynlegum vítamínum, steinefnum og amínósýrum
- Talið innihalda andoxunarefni sem vernda frumur gegn oxunarálagi
- Talið innihalda næringarefni sem taka þátt í að viðhalda eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
Talið geta nært húð og hár:
- Talið innihalda vítamín sem styðja við kollagen framleiðslu og viðhalda raka
- Talið innihalda prótein og amínósýrur sem hjálpa við endurnýjun frumna
- Talið innihalda andoxunarefni sem vernda húðfrumur
- Talið innihalda steinefni sem styðja við hárvöxt
Notkun:
Taktu 1 teskeið (5g) á dag. Bættu í vatn, smoothie, safa, te eða hvað sem þér dettur í hug!
Ath!
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt.
